Spurningaleikur Galleri Sautján og Bylgjunnar

Á fimmtudaginn síðastliðinn opnaði ný stórglæsileg Galleri Sautján verslun í Smáralind.
Við erum mjög ánægð með verslunina sem er eins og sést á myndunum hin glæsilegasta og þar ættu flestir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi á góðu verði. Í tilefni af opnuninni er 20% afsláttur af öllum vörum þessa opnunarhelgi.

Galleri Sautján hefur verið ein ástsælasta tískufataverslun landsins um árabil eða allt síðan fyrsta SAUTJÁN verslunin var opnuð á Laugavegi 46. Síðar var nafninu breitt úr SAUTJÁN í GALLERI SAUTJÁN. Í dag eru verslanir Galleri Sautján starfræktar á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Laugavegi, í Kringlunni og í Smáralind.

Stefna og markmið Galleri Sautján hefur frá upphafi verið að bjóða nýustu tísku á besta verðinu. Í ár hefur okkur tekist í samstarfi við birgja okkar erlendis að halda vöruverðinu lágu sem hefur fallið vel í kramið hjá viðskiptavinum okkar.

Gallabuxur hafa alltaf skipað stóran sess í vöruúrvali okkar og ber þar fyrst að nefna hið ítalska Diesel, eitt þekktasta gallabuxnamerki heims, sem hefur verið meðal vinsælustu vörumerkja Galleri Sautján um árabil. Fleiri þekkt gallabuxnamerki eru á boðstólum hjá Galleri Sautján s.s. Miss Sixty, Dr. Denim, Nudie Jeans, G-Star, Solid Jeans og Tiger Jeans.

Íslensk hönnun hefur sjaldan verið eins vinsæl og stendur Galleri Sautján framarlega í framboði á flottri íslenskri hönnun. Meðal íslenskra merkja sem eru í boði í Galleri Sautján eru Mao herralínan, Parks jakkafatalínan, Mia og Moss dömulínurnar og Emami kjóllinn einstaki.

Myndir frá opnuninni er að finna hér














Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid