Bleika slaufan 2008
NTC styrkir Krabbameinsfélagið með sölu á sérhönnuðum stuttermabolum tileinkuðum átaki Bleiku Slaufunnar. Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins.
„Það eru ekki allir sem ganga með skartgripi þannig að við ákváðum að fara aðra leið og um leið að gera eitthvað nýtt, segir Inga Rósa Harðardóttir sem hefur veg og vanda að verkefninu innan NTC. „Enda hafa bolirnir hitt í mark hjá yngri kynslóðinni nú þegar, sem er æðislegt.“
NTC fékk í lið með sér hönnuðinn Sylvíu Dögg Halldórsdóttur, sem kom með þessa skemmtilegu hugmynd að hönnun á bol. „Vigdís Finnbogadóttir hefur bæði sigrast á brjóstakrabbameini og er verndari Krabbameinsfélagsins, því þótti það samspil alveg kjörið,“ segir Inga Rósa. „Vigdís Finnbogadóttir var líka fyrst kvenna forseti í heiminum og sýnir það sterkan og öflugan kvenleiðtoga sem við viljum líka koma á framfæri.“
Bolirnir henta öllum aldri og er það ekki síður karlmannanna að fjárfesta í slíkum bol til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini, því það snertir okkur öll á einn eða annan hátt. Bolirnir fást í tveimur litum, svörtum og hvítum og í öllum stærðum.
Þær verslanir sem selja bolinn eru Kultur, Galleri Sautján, Companys, Deres, Miss Sixty, Retro, Eva, Galleri húsið Laugavegi 91.
Verð 3.500 kr














Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid