Okkar stíll

Edda Björg Bjarnadóttir 21.5.2010 Okkar stíll

Karakter - Okkar stíll

NTC opnaði nýverið Karakter, glæsilega verslun í Kringlunni þar sem Miss Sixty var áður til húsa. Karakter selur vandaðan kvenfatnað frá Ítalíu í stærðum 36 til 48. Við litum inn og ræddum stuttlega við Örnu verslunarstjóra og Ragnheiði starfsmann Karakter.

Aðspurðar hvernig fatastíll þeirra væri sagðist Ragnheiður vera fremur nútímaleg í klæðnaði. Arna sagðist aftur á móti ekki aðhyllast einn stíl heldur blanda saman mismunandi stílum bæði töffaralegum og fínum klæðnaði.

         100519_mnstl_kar-022_cutfw                                                    

Fatnaður Örnu

Alternitiva stígvél 36.990

Boris alladín buxur 18.990

Boris hálsbönd 4.990

Imperial jakki úr Kultur 21.990

Kultur hlýrabolur 4.990

 

100519_mnstl_kar-020_cutfw Fatnaður Ragnheiðar

Blink skór 17.990

Private label undirkjóll 4.990

Angela Davis silkibolur 11.990

Siste‘s síðerma bolur 8.990

Lux leggings 8.990

 

 

 

 

 

 

Þegar þær voru spurðar að því hvað þær langaði í fyrir sumarið voru þær ekki lengi að hugsa sig um. Ragnheiður sagði að ljósar gallabuxur og ljós leðurjakki væri efst á lista. Arna var á svipuðum nótum, langaði í ljósar gallabuxur og flotta sandala. "Mig langar líka rosalega í eitthvað hvítt, þar sem ég tel að það verði mikið um það í sumar" segir Arna verslunarstjóri að lokum.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica