Steldu stílnum

NTC Vefstjóri 24.9.2009 Steldu stílnum

Steldu stílnum - Rihanna

R&B söngkonan Rihanna hefur skapað sér sérstöðu meðal R&B söngkvenna fyrir fágaðan og flottan fatastíl enda kýs hún frekar föt frá flottum hönnuðum í stað stuttu toppanna sem sýna naflaskrautið.  Fyrir vikið hefur nafn Rihönnu verið tíður gestur í upptalningum um best klæddu stjörnurnar og til að mynda var hún á topp 10 listanum hjá People fyrir árið 2008 og tímaritið Glamour valdi hana í 17. sæti af 50 yfir mest "glamorous" konur ársins 2009.

Í umfjöllun Glamour kemur fram að Rihanna sé óhrædd við að taka "áhættu" í fatavali og að svo virðist sem að hún sé ófær um að gera "tískumistök" um þessar mundir.

Rihanna

Stelpurnar í Galleri Sautján Kringlunni voru ekki lengi að finna til flíkur til að fanga stemninguna (stela stílnum) hjá Rihönnu. 

Fyrst og eru það buxurnar sem eru Biker Jeans frá Sisters Point á 12.990.

Sisters Point gallabuxur

 Síðan eru það Moss bolur á 3.990 og grátt vesti á 5.990.

Bolur og vesti

Og til að toppa stemninguna eru það sólgleraugu á 1.990.

Sólgleraugu

 Góða skemmtun um helgina!

kveðja,

Stelpurnar í Galleri Sautján


Þetta vefsvæði byggir á Eplica