Private Label - Íslensk framleiðsla

Vinsældir íslenska tískumerkisins Private Label hafa verið að stigmagnast undanfarnar vikur allt frá því að vörur þess komu í sölu um mitt sumar í Kultur menn. Það er Olgeir Líndal verslunarstjóri Kultur menn í Kringlunni sem er hönnuður Private Label.

Olgeir varð innblásin eftir vinnuferð til London þar sem hann sá hvernig nýta mátti efni á mismunandi vegu. “Ég sá hvernig ungir hönnuðir voru að blanda saman efnum á skemmtilegan máta og vildi gera eitthvað nýtt og spennandi úr efnum sem til voru á lager saumastofu NTC.”
Jakkarnir eru sniðnir af galdramanninum Tómasi Sveinbjörnssyni og unnar af stelpunum á saumstofu NTC en aðeins er framleiddur takmarkaður fjöldi af hverri flík, sem gerir flíkina mun sérstæðari fyrir vikið. Efnin sem notuð eru í fatnaðinn frá Private Label eru meðal annars ull, gallaefni og flannel.
Vinsælasta varan frá Private Label eru jakkar sem eru innblásnir af fínni herratísku áttunda áratugarins með straumum úr hinum ýmsu stefnum liðinna áratuga líkt og mod-i sjöunda áratugarins, punk-i áttunda áratugarins og new wave níunda áratugarins. Öllu er blandað saman í hönnun jakkana og útkoman er eitthvað alveg nýtt.
Margar útgáfur eru til af jakkanum og hefur Kultur menn vart getað annað eftirspurn á þeim eftir að þeir fóru í sölu í sumar. Grunnurinn á öllum jökkunum er eins en ýmis töff smáatriði skilja að í hönnun hvers jakka. Stakar buxur í stíl við jakkana fást einnig ef nota á sem jakkaföt.
Væntanlegar eru í haust gallabuxur frá Private Label þar sem búið er að prenta inn í fóðrið á buxunum texta með umfjöllun um Andy Warhol. Andy Warhol var einn þeirra sem fyrstur gekk í gallabuxum við fína herrajakka og braut þar með blað í herratískunni og skapaði nýtt trend. Textinn, sem einnig hefur verið prentaður inn í jakkana góðu, segir okkur réttu söguna á bak við “Warhol look-ið” sem er eignað listamanninum.














Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid