Tískuumfjöllun

Óli Dóri 15.9.2009 Tískuumfjöllun

Rokkuð skótíska

 

 gsk_0909_2821_fw gsk_0909_2823_fw   gsk_0909_2822_fw

Rihanna í Balmain skómSkótíska vetrarins verður með mun grófari hætti en undanfarin ár. Áhrif frá pönki, rokki og hermannastíl gætir í stígvélum meðan að ökklaskórnir og hælaskórnir eru fágaðri.

 Það nýjasta í stígvélatískunni er að stígvélin í vetur eru mun hærri en áður og ná alveg upp að læri eða við hné. Einnig er mikið um svokallaða “studs” eða gadda, sem hafa verið gríðarlega vinsælir í allri tísku að undanförnu, bæði á stígvélum og á ökklaskóm. “Stígvélin eru grófari, það er meira rokk í gangi”. Segir Lára Jóna Ingadóttir rekstrarstjóri skódeildar N.T.C. Stígvél með spennum, úr grófari leðri verða á boðstólum í vetur og einnig hermannklossar frá Dr. Martins sem er afturhvarf í pönkið. “Þetta er nákvæmlega sama og var í gangi þegar pönkið var. Þannig að pönkið er að koma aftur en í fágaðri útfærslu” .

Í ökklaskóm er mikið um “studs” og keðjur á mjög dömulegum skóm sem eru reimaðir með hæl í Ballmain stíl. En hönnuðurinn Ballmain hannaði kristalsskreytta sandala sem söngkonan Rihanna hefur meðal annars klæðst og síðan þá hafa vinsældir “studs” á skóm aukist til muna.  Hælaskórnir eru í algeri  andstæðu við allt þetta grófa sem er í stígvélunum.  Mun hærri hælar en áður hafa verið á mjög fáguðum skóm.

 “Tískan í vetur er afslöppuð og hentar íslensku veðri vel” segir Lára að lokum.

Allir skórnir í fréttinni fást í GS Skór, Kringlunni, Smáralind og Laugavegi.

 drmart_1460_boot    bronx_13391_boot

 

 

 

    


Þetta vefsvæði byggir á Eplica