Tískuumfjöllun

Óli Dóri 29.9.2009 Tískuumfjöllun

Óhefðbundin herralína hjá Diesel

 

DieselEins og síðustu ár er mikið  um dökkar gallabuxur í línu vetrarins hjá Diesel. Mikil áhersla er lögð á smáatriði líkt og tölur, sauma og rassvasa og eru nýjustu sniðin þægilegri en áður. “Það eru öll snið í gangi en meira um rúmar og þægilegar buxur, ekki alveg níðþröngar niður”. Segir  Gunnlaugur Bjarki Snædal rekstrarstjóri herradeildar N.T.C.

Ný snið eins og Gualbon og Krooley henta flestum mjög vel.  Larkee er alveg beint snið sem er búið að vera vinsælt í langan tíma. Fyrir þá sem vilja aðeins þrengri buxur að neðan þá er Darron málið. Hægt er að fá þær í öðrum efnum heldur en gallaefni í mismunandi litum.

 

DieselMikið  er um köflóttar, grófar flannel skyrtur  hjá Diesel í ár. “Þetta er búið að vera vinsælt í smá tíma en er að ná hámarki þessa stundina”. Segir Gunnlaugur Bjarki. Þessi tíska á rætur að rekja til “Grunge” tísku 10. áratugarins. Þegar rokkstjörnur líkt og Kurt Cobain og Eddie Vedder létu vart sjá sig án þess að klæðast flannel skyrtum.

Peysurnar eru grófari en undanfarin ár og  mikið um að þær séu tvíhnepptar með hettu, bæði þunnar og þykkar sem koma í staðinn fyrir þessar klassísku hettupeysur.  “Diesel er mjög rokkað í vetur, óhefðbundið og kúl, ef ég ætti að lýsa því með einni setningu væri það Lumberjack hittir Pete Doherty”. Segir Gunnlaugur Bjarki að lokum.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica