Niðurmjóar gallabuxur í dömulínu Diesel

Mikið er um tættar gallabuxur í dömulínu Diesel. Buxurnar er sýruþvegnar og megin litirnir eru ljósblátt, svart og grátt. Mikið er um “studs” og rennilása og algengt er að buxurnar séu þröngar niður. “Niðurmjótt er að koma sterkt inn hjá okkur í haust, síðustu tvö ár hafa buxur verið frekar útvíðar en núna er meira um niðurmjóar buxur”, segir Guðlaug Einarsdóttir verslunarstjóri Gallerí Sautján í Kringlunni. “Matic er niðurmjótt snið sem búið er að vera mjög vinsælt hjá okkur upp á síðkastið og verður einnig áberandi í vetur. Livy er ný útgáfa af Liv sniðinu sem búið er að vera lengi vinsælt hér á landi og Cuddy er snið sem er millisítt og verður einnig áberandi. Sniðin er flest orðinn hærri upp í mitti en áður”, segir Guðlaug.

Mikið er um klóraða boli í ár með fallegum merkingum og eru aðal litirnir grár og bleikur. Bolirnir hafa sérstaka áferð, eftir mikinn þvott, sem gera þá “pönkaralega”. Þykkar ullarpeysur með köðlum verða einnig áberandi í allskyns litum. Í línunni má einnig finna gallaskyrtur.














Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid