Bobbie Burns; innblástur úr rokktónlist
Sænska fyrirtækið Bobbie Burns, sem stofnað var árið 2001, hafa frá byrjun sérhæft sig í fatnaði sem tengist rokktónlist. Árið 2004 flutti fyrirtækið fókusinn eingöngu að hönnun og framleiðslu á skóm, undir sömu formerkjum.
Bobbie Burns hafa oftar en ekki litið til eldri hljómsveita fyrir innblástur að hönnun. Hljómsveitir á borð við The Rolling Stones, The Kinks og Stooges hafa allar verið fyrirmyndir fyrir Bobbie Burns skó. Í línu þeirra í ár má finna flotta leðurskó í klassískri hönnun en það eru strigaskórnir sem mesta athygli vekja enda flottir strigaskór órjúfanlegur partur af pönk og rokkmenningunni . Í sumar voru skórnir í miklu litaúrvali og úr gamla góða striganum en í haust eru sömu skórnir fáanlegir í leðri sem hentar betur í bleytunni í vetur. Svartur og hvítur litur er algengur en einnig fást skórnir í brúnu.
|
![]() |
![]() |
![]() |
Sú athygli sem skórnir hafa fengið og velgegni Bobbie Burns á alþjóðavettvangi er ekki síst að þakka góðum gæðum og fallegri hönnun sem fer ekki alltaf saman. Ekki skemmir svo að verði er stillt í hóf. Árangur Bobbie Burns í tískuheiminum hefur verið skjótur og eru nú Bobbie Burns skór seldir um allan heim, í Skandinavíu, Evrópu, Suður Afríku og að sjálfsögðu í búðum NTC á Íslandi en hægt er að nálgast Bobbie Burns skó í verslunum Galleri Sautján, Deres, Urban og Retro.

















Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid