Tískuumfjöllun

Óli Dóri 23.10.2009 Tískuumfjöllun

Úlpur fyrir veturinn

 

Nú þegar veturinn bankar á dyrnar og veður fer kólnandi er fátt nauðsynlegra en góð úlpa til að halda á sér hita. Í verslunum NTC þennan veturinn er ýmislegt í boði fyrir þá sem vilja eignast góða yfirhöfn.

Mao herraúlpa

Hinar íslensku Mao loðkragaúlpur fyrir herra, sem fást í Gallerí 17, Deres og Retró, eru einstaklega vandaðar í hönnun og gerðar sérstaklega fyrir íslenska veðráttu. Hægt er að renna loðkraganum af úlpunni og stendur þá eftir einstaklega fallegt svart fóður. Úlpurnar eru í svörtum lit líkt og flestar úlpur þennan veturinn.  Áferðin á þeim er glansandi og nýtist hún því vel í rigningu og snjó.  Úlpan er með ýmsum vösum á, meðal annars  Ipod-vasa með gati fyrir snúru. Úlpan er mjög hlý og fóðruð með dúnefni og kostar aðeins 24990 kr. 

Mia dömuúlpa

Mia loðkragaúlpurnar fyrir dömur svipar mjög til Mao úlpnanna. Líkt og Mao koma þær í stærðum XS upp í XL.  Þær eru smá aðsniðnar og hægt er að renna þeim alveg upp í háls. Þær fást í sömu verslunum og Mao úlpurnar og kosta aðeins 15990 kr.

Carhartt úlpan

Hinar geysivinsælu Carhartt úlpur er komnar aftur í Smash í Kringlunni og í Smáralind. Úlpurnar eru til í brúnum, bláum, svörtum og gráum lit fyrir herra en í svörtum fyrir dömur. Úlpurnar eru mjög þykkar og eru til í  stærðum XS upp í XXL. Þær eru bæði vatns- og vindheldar og inn í þeim er teygja sem gerir það mögulegt að hægt er að þrengja þær.

Carhartt úlpan

Herra úlpurnar eru víðar yfir ermarnar á meðan dömu úlpurnar eru meira aðsniðnar. Verðið á Carhartt úlpum er 38990 kr.

Yfirhafnadagar standa nú yfir í Gallerí 17 á Laugarvegi og Kringlunni, Retro Smáralind og í Deres í Kringlunni, allar yfirhafnir eru á 15% afslætti.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica