Tískuumfjöllun

Óli Dóri 2.11.2009 Tískuumfjöllun

Þykkar herrapeysur áberandi

 

Gollur, sem hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár, eru enn mjög áberandi þegar herratískan er skoðuð þennan veturinn og hægt að fá þær í Galleri Sautján, Retro og Urban í allskyns útfærslum.  Þær fást bæði  hefðbundnar og tvíhnepptar og  er mikið um að þær séu þykkar og hlýjar. Gollur frá Diesel er hægt að fá í svörtum, rauðum og bláum lit og frá Solid er hægt að fá gollur í fjólubláum, rauðum, dökkgráum, ljósgráum og svörtum lit. “Flestir hafa einhvern tímann átt svarta gollu” segir Sindri Snær Jensson verslunarstjóri í Galleri Sautján í Kringlunni. “Nú eru menn farnir að prufa sig áfram í öðrum litum eða einhverju öðruvísi eins og þykkum og hlýjum peysum”.

 g17_0911_pey_05    g17_0911_pey_02
 Diesel - 17.990   Ambrose & Jackson -  12.990

 

Þykkar og hlýjar peysur með stórum tölum og öðrum skemmtilegum smáatriðum eru algengar í ár. Bæði Diesel og Solid bjóða upp á slíkar peysur í línum sínum sem fást í verslunum Galleri Sautján, Retro og Urban. Einnig er mikið um hefðbundnar v-hálsmáls peysur og einlitar peysur sem henta öllum vel. Grár litur er áberandi í peysum þennan veturinn og er hann í mismunandi tilbrigðum. Mikið er um dökkgráan og ljósgráan lit og einnig er mikið um “Navy” gráan í peysum. “Grátt er dálítið að koma í staðinn fyrir svarta litinn sem hefur oftast hefur verið algengastur” segir Sindri.  Algengustu efnin eru bómull í gollunum, með smá teygju í sem gerir flíkina mjög létta, en  þykkri peysurnar eru oftast  samsettar úr  ull og akríl.

 g17_0911_pey_01    g17_0911_pey_03
 Solid - 8.990    Solid - 14.990
 g17_0911_pey_04    g17_0911_pey_07
 Solid - 12.990    Solid - 8.990

Þetta vefsvæði byggir á Eplica