Tískuumfjöllun

Óli Dóri 18.11.2009 Tískuumfjöllun

Aukahlutir lífga upp á lífið

  Skart í NTC

 

Erfitt er að efast um þau áhrif sem fylgihlutir hafa á klæðnað fólks, sérstaklega kvenmanna. Buxur síðan í fyrra breyta strax um yfirbragð ef beltið sem notað er við þær er nýjasta tíska. Aukahlutir eru ódýrari leið til þess að eignast merkjavöru og líklega hagkvæmari til lengri tíma litið. Segja má að aukahlutir hafi verið allt í  öllu upp á síðkastið og í rokkaðra lagi. Hrafnhildur Hjaltadóttir sér um skart og fylgihluti fyrir NTC búðirnar við tókum hana tali og spurðum út í veturinn í aukahlutum.

“Það er mikið um svokölluð Bangles armbönd, sem eru hörð armbönd sem maður smokrar upp höndina. Einnig er mikið um stór margföld hálsmenn, með perlum. Belti eru mjög rokkuð í vetur með “studsum” á og mikið er um teygjubelti þegar beltatískan er skoðuð.”  Segir Hrafnhildur.

g17d_0908_2603_moss_7_b

Klútar og treflar verða nauðsynlegir með kólnandi veðri. Mikið er um einlita klúta með munstri og eins heklaða eins og sjöl. Arabaklútarnir svokölluðu, sem hafa verið vinsælir síðustu ár, halda líka áfram.

Þegar töskur vetrarins eru skoðaðar eru kögurtöskur áberandi. “Það er mikið um kögra á töskum og svo eru lakktöskur með munstri og “studsum” algengar”. Segir Hrafnhildur. Blómanælur með bandi til að binda við hendur er að finna í verslunum NTC,  þær eiga eftir að verða fyrirferðamiklar í tískunni næstu misseri. 

Ullar prjónahúfur, hlýjar og smart eru einnig áberandi eins sólgleraugu. “Það er mesti misskilningur að maður eigi bara að ganga með sólgleraugu á sumrin. Þau eru t.d mjög þægileg þegar maður er að keyra. Í ár eru þau stór í anda sjöunda áratugarins. Stórir hringir eru líka mikið inni, líkt og sjá má í þáttum á borð við lipstic jungle, skreytir með stórum  blómum eða steinum.”

 Mikið úrval aukahluta fæst nú í verslunum Galleri Sautján, Retro, Sparkz, Urban, Companys, Kultur og Evu.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica