Tískuumfjöllun

Óli Dóri 9.12.2009 Tískuumfjöllun

Jakkaföt fyrir jólin

Fín jakkaföt er góð fjárfesting bæði vegna góðrar endingar og þeirra ótal mismunandi tækifæra sem bjóðast til að klæðast þeim. Í Galleri Sautján fást vel sniðin jakkaföt frá Mao og Parks á góðu verði.  Línan í ár er sígild en hægt er að gera fötin litríkari með fallegum aukahlutum s.s. beltum, bindum, slaufum eða vasaklútum.  

Parks 

   Parks
 Parks svört jakkaföt    Parks grá jakkaföt
 Mao    Mao
 Mao svört jakkaföt    Mao grá jakkaföt

 

Fötin frá Mao og Parks í ár eru klassísk og passleg, jakkarnir aðsniðnir og jakkafatabuxurnar þrengjast niður. “Þetta hentar flestum mjög vel og er mjög smekklegt, ekki eins ýkt og í gallabuxnasniðunum síðustu ár" segir Sindri Snær Jensson verslunarstjóri í Gallerí 17 í Kringlunni.  Algengast er að fötin í ár séu einlit, svört eða dökkgrá. Fötin eru úr blöndu af ull og polýester og verðið er frá 34.990 upp í 39.990 kr.

 Í Kultur Menn í Kringlunni fást bæði klassísk jakkaföt og föt sem fylgja nýjustu tísku m.a. frá Matinique, Tiger of Sweden, Paul Smith og Exibit Italia.  Það sem er einna helst í tísku um þessar mundir eru aðsniðin, tveggja tölu jakkaföt.  Klassísku fötin eru með aðeins víðari buxur og síðari jakka.

 Matinique    Tiger of Sweden
 Matinique jakkaföt    Tiger of Sweden jakkaföt
 Paul Smith    Exibit Italia
 Paul Smith jakkaföt    Exibit Itali jakkaföt

Við seljum föt í anda nýjustu tísku en þeir karlmenn sem kjósa hefðbundnari snið ættu ekki að koma að tómum kofanum í Kultur Menn” segir Olgeir Líndal verslunarstjóri í Kultur Menn. “Við jakkafötin eru hvítar skyrtur vinsælastar fyrir jól og áramót, svo má lífga upp á klæðnaðinn með aukahlutum s.s. ermahnöppum, bindum og hálstreflum og klútum sem eru mikið í tísku núna” segir Olgeir.

Jakkaföt fást frá 39.990 og uppúr í Kultur Menn og nú fyrir jól er veittur 20% afsláttur af jakkafötum og skyrtum í versluninni. 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica