Tískuumfjöllun

Óli Dóri 25.1.2010 Tískuumfjöllun

BE STUPID - Diesel hvetur til fífldirfsku!

5069945_Master_TricycleStack_DPS

Fata merkið Diesel, er um þessar mundir að hefja herferð sem þeir kalla "Be Stupid", sem hvetur neytendur til að taka áhættur og hafna skynsamlegum lausnum í lífinu…. sýna fífldirfsku. Herferðin, sem fylgir eftir vor- og sumarlínu tískurisans, byggist á stuttum auglýsingum sem innihalda dæmi um hvað hegðun sem sýnist óskynsamleg getur í raun verið ábótasöm.

Samkvæmt þessari herferð Diesel er lykilinn að árangursríku lífi að slaka á skynseminni. Þetta snýst um að fylgja hjartanu en ekki höfðinu. Fífldirfska snýst um ástríðu, vera í vitlausum fötum á réttum stöðum, skipta um hlutverk og reyna nýja hluti, mistakast og reyna aftur. Í samræmi við það sem Diesel hefur áður verið  þekkt og notið vinsælda fyrir, er þessi nýja lína full af vel hönnuðum og glæsilegum fatnaði sem inniheldur m.a stuttar gallabuxur og leðurjakka í björtum litum.

2A_5069788_MasterHeadMailbox

Stofnandi Diesel Renzo Rosso lýsir “Be stupid” línu fyrirtækis síns fullkomlega þegar hann segir frá reynslu sinni við að  markaðssetja “notaðar” gallabuxur; “Það er heimska er að heimsækja verslanir eftir verslanir með það að markmiði að selja nýjar gallabuxur sem voru gerðar til þess að líta út fyrir að vera notaðar. Það er tákn um nýsköpun þegar þú ert að gera eitthvað sem enginn jafnvel hugsar um”.

2A_5069775_Master_Wallriding_DPS

“Be Stupid” lina Diesel er væntanleg  verslanir NTC með vorinu.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica