Tískuumfjöllun

Óli Dóri 16.2.2010 Tískuumfjöllun

Fermingartískan

 

100204_17.30.50_

Það á sér langa hefð að fermingarbarnið fái nýjan fatnað fyrir ferminguna.  Lengi vel kom ekki annað til greina en að fermingarfatnaðurinn væri formfastur og sígildur (lesist púkó).   Þessir tímar eru sem betur fer löngu liðnir og fermingartískan fylgir því tískusveiflum hverju sinni.  Fermingarfatnaður Galleri Sautján hefur notið vinsælda í meira en 20 ár og engin tilviljun að verslunin hafi fylgt ófáum íslenskum unglingum inn í fullorðinna manna tölu. Við töluðum við Gunnlaug Bjarka og Ingu Rósu rekstrarstjóra herra og dömudeildar NTC og forvitnuðumst um fermingarfötin í ár.

 

100204_19.25.52_  100204_19.14.56_   100204_18.37.12_

Stelpurnar klæðast pastellitum í bland við hvítt og svart í ár.  Ekki er lögð eins mikil áhersla á aukahlutina eins og hjá strákunum þó að þeirra gæti í línunni. Kjólarnir eru í gömlum stíl  og rómantískir.  “Það má segja að fermingarlínan hjá okkur í ár sé undir miklum áhrifum frá Coco Chanel, blandað saman við gamaldags breskan yfirstéttarklæðnað”, segir Inga Rósa. Við kjólana fást svo spangir, belti, sokkar og krossar. “Stelpurnar vilja vera í hælum við kjólana og í háum sokkum með slaufu, sem kemur vel út með sokkabuxum undir”.  Fermingarfötin eru í kvenlegra lagi í ár og eins og áður segir rómantísk. “Þessi föt verður hægt að nota aftur í sumar, þetta eru allt litir sem verða mjög vinsælir í vor”.

 

100204_19.21.07_  100204_19.33.32_  100204_19.05.12_ 

Hjá strákunum eru það aukahlutirnir sem  skipta máli. Fínir Trilby hattar, slaufur, axlabönd og vasaklútar í alls konar litum. Sem fyrr eru það svört aðsniðin föt sem eru aðalhlutverki en aukahlutirnir “poppa” þau upp. Skyrturnar sem eru í boði ár eru hvítar, rauðar, svartar og köflóttar.  “Svört jakkaföt, rautt mjótt bindi við og til að poppa þetta aðeins upp læturðu einn lítinn vasaklút í brjóstvasann, smellir á þig Jackson hattinum og tekur sporið” segir Gunnlaugur Bjarki og hlær. “Svo erum við líka með frakka í stærðum fyrir fermingastráka, hann er tvíhnepptur og stuttur og saumaður á saumstofu NTC”. 

 

100204_19.30.40_   100204_19.18.43_ 100204_19.47.18_ 

Hluti af línunni er framleiddur á Íslandi og aðlaður að íslenskum veruleika. Fyrir þá sem vilja ekki alveg fylgja klassíska útlitinu er boðið upp á gallabuxur frá Diesel í fermingarstærðum. Við þær er hægt að klæðast skyrtu og svo hnepptri gollu yfir. “NTC er búið að búa til fermingarföt í 20 ár, við erum trúir okkar viðskiptavinum. Þetta er stór dagur í lífi strákana og við eigum allt á milli þess hvort þú vilt vera þessi klassíski fíni eða krydda þetta aðeins upp og vera óhefðbundnari í stökum jakka, gallabuxum og skyrtu. Hatturinn er tímalaust punkturinn yfir i-ið”.  


Þetta vefsvæði byggir á Eplica