Tískuumfjöllun

Óli Dóri 5.3.2010 Tískuumfjöllun

Hattar aftur inn hjá karlmönnum

 

 

IMG_5600

Trilby hattur og Sixpensari

Vinsældir hatta sem fylgihluta hjá karlmönnum kemur í bylgjum en það má segja að  þær hafi aukist töluvert á síðustu misserum. Þeir hattar sem eru hvað vinsælastir í dag eru svartir mjög einfaldir hattar. Slíkir hattar eru oft kallaðir “trilby” og voru notaðir hversdagslega af stórum hluta karlmanna frá síðari hluta 3. áratug síðustu aldar til síðari hluta þess 7. Frægir tónlistamenn á borð við Michael Jackson og Pete Doherty hafa svo gert þá vinsæla á nýjan leik á síðustu áratugum.

 Jackson

ATH!  Jackson verslaði þennan hatt ekki í

Galleri Sautján.

 

Pete-Doherty

Pete er frægur hattaunnandi. 

IMG_5603-(2)

Hér má sjá tvo herra ræða mál líðandi

stundar.  Hattarnir á vísum stað.

 

 IMG_5601

Sumir gleyma að taka ofan þegar mikið

er að gera.

IMG_5602-(2)

Sixpensarinn er skemmtilegur fylgi-

hlutur.

 

 “Hattar eru aðeins öðruvísi en aðrir fylgihlutir og því kannski of flippað að fara út í einhverja liti myndi ég segja. Hattar krydda upp á klæðnaðinn og það fer eftir hverju maður er í hvernig hatt maður notast við” Segir Bjartur Snorrason aðstoðarverslunarstjóri í Galleri 17 í Kringlunni “Flestir sem eru að kaupa hatta hjá okkur nota þá við fínni klæðnað og kaupa því Trilby. Þeir sem kaupa sér hatta við hversdagsklæðnað kaupa sér frekar sixpensara, Þeir hafa komið sterkir til baka upp á síðkastið. Aðallega svartir eða gráir”. Bæði er hægt að kaupa “Trilby” hatta og Sixpensara í Galleri 17 í Kringlunni, Laugarvegi og Smáralind.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica