Skótískan vorið 2010
|
|
Reimaðir ökklaskór eru klárlega málið í vor” segir Lára Jóna Ingadóttir rekstarstjóri fyrir Gs skó. Mikið er um reimaða ökklaskó í fallegum litum og eins mikið um ökklaskó með fylltum hæl. “Þessir skór ganga við hvað sem er og eru búnir að vera mjög sterkir í vetur og halda áfram í vor”.
![]() ![]() |
![]() |
Það sem einnig einkennir skótísku vorsins eru flatir, reimaðir leðurskór. Strigaskór, fyrir alla aldurshópa er að finna í dömulínu skóframleiðandans Bobbie Burns. “Þeir henta vel fyrir eldri konur, eru penir, í skemmtilegum litum og sumarlegir og sætir”, segir Lára.
![]() ![]() ![]() |
Í sandölum verður mikið af svokölluðum gladiator sandölum, þeir halda áfram í sumar líkt og opnir sandalar með spennum og “studs”. Sandalar eru mikið í hermanna og rokkstíl. Uppreimaðir hermannskór halda áfram inn í vorið og sumarið, en það sem gerist núna er að þeir koma inn í léttari efnum. En hvað eru helstu sumarskórnir í ár? “Vonandi sandalar ef við fáum gott veður”, segir Lára í lokin.





















Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid