Tískuumfjöllun

Óli Dóri 9.4.2010 Tískuumfjöllun

Sumarið komið hjá Solid

 

 

 

 100409_g17_solid-003100409_g17_solid-005

Sumarið er komið hjá Solid” segir Bjartur Snorrason aðstoðarverslunarstjóri í Galleri 17 í Kringlunni. Helstu litirnir hjá Solid þetta vorið eru grænn, blár, gulur, rauður og fleiri skærir  litir.  Mikið er um skyrtur í skrautlegum litum, bæði stutterma og síðerma. 

Chinos buxur er að finna í línu Solid. “Þær koma sterkar inn í ljósbláum, dökkbláum, gráum, sandlituðum og ljósgráum litum á 12.990 kr”, segir Bjartur.  Þegar kemur að yfirhöfnum í sumar eru það stuttir nælon jakkar og vindjakkar.  

Hægt er að fá gollur í flestum litum og sama á við um hettupeysur frá Solid.  “Meira er um skæra liti og má segja að svartur og grár sé á undanhaldi, öll merki í dag eru að gefa í skyn að litir séu málið, kreppan á enda og ekki þörf að vera í þunglyndi” segir Bjartur brosandi.

 100409_g17_solid-010  100409_g17_solid-001

 

100409_g17_solid-011

Solid

Ein gollan frá Solid í ár prýðir alla regnbogans liti; hún er með blátt bak, eina gula og fjólublá ermi og aðra græna og appelsínugula og rauð í endann á báðum ermunum, líkist helst flík sem Will Smith klæddist í Fresh Prince of Bell Air á 10. áratug síðustu aldar. “Þetta er án efa skemmtilegasta flík búðarinnar” segir Bjartur léttur í bragði.

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica