Sterkir litir í Kultur menn
|
|
Sterkir litir eru áberandi þegar rennt yfir verslunina Kultur menn í Kringlunni um þessar mundir. “Litir eru klárlega málið fyrir sumarið, einnig köflótt”. Segir Olgeir Líndal verslunarstjóri Kultur menn. “Það sem er mest áberandi hjá merkjunum okkar eins og Tiger Of Sweden og Matinique eru herraskyrtur bæði köflóttar og í sterkum litum. Sama á við í bolunum”, segir Olgeir. Smáatriði eru mikilvæg í herraskyrtum í sumar, líkt og bætur og öðruvísi tölur. Rauður er mjög áberandi og hægt er að fá rauðar gollur og rauða póló boli í Kultur menn.
|
![]() |
Í vor og sumar eru það svo fylgihlutirnir sem halda klæðnaðinum aðeins niðri á jörðinni. Helstu fylgihlutir fyrir karlmenn í sumar eru klútar í jarðlitum sem vega upp á móti sterkum litum á öðrum flíkum. Einnig koma margskonar herratöskur sterkar inn í vor, snyrtitöskur, íþróttatöskur og alhliða töskur. “"Einnar nætur" töskur eru áberandi og eiga eftir að henta vel fyrir styttri ferðalög í sumar”, segir Olgeir. Töskurnar í Kultur menn eru frá Paul Smith og Matinique.
![]() |
|
Leður og strigaskór í áberandi litum, ljósbláum, hvítum og bláum frá Paul Smith eru til sölu í Kultur menn og verða án efa vinsælir í sumar.
Með heimsókn í Kultur menn kemur herramaðurinn vel undan vetrinum og tilbúinn í sumarið.
















Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid