Tískuumfjöllun

Óli Dóri 6.5.2010 Tískuumfjöllun

Áberandi litir og rómantík í Companys

Verslunin Companys í Kringlunni er litrík þessa dagana og augljóst að vor er í lofti. Mikið úrval er í boði af vönduðum vörum sem henta flestum konum.

 
Helstu merki sem seld eru í Companys eru: Inwear, Part Two, Saint Tropez og Soaked In Luxury. Þegar vorlínur þessara merkja eru skoðaðar sést að áberandi litir og gallaefni koma sterk inn með vorinu. Hjá Part Two eru gallajakkar áberandi bæði í ljósum og dökkum litum og einnig gallavesti. Stuttir, þröngir jakkar úr “kaki” efni eru líka fyrirferðamiklir. Litirnir hjá Part Two eru hvítur, appelsínugulur og sæblár. “Fallegir bjartir litir koma á móti gallaefninu og jarðlitunum”, segir Lára Jóna Ingadóttir rekstrarstjóri Companys.
 
IW_1001_CA_006_A5OW
 
Hjá Inwear er mikið um sterka liti í “offwhite”, svörtum  bleikum og bláum. Yfirhafnir eru léttar fyrir vorið úr mismunandi efnum og sniðum. “Léttir stuttir sumarfrakkar bæði hnésíðir og mittissíðir, í svörtum, gráum og ljósum lit.  Saint Tropez er rómantíkin uppmáluð í vor, pastellitir, bleikur, hergrænn og brúnn ráða þar ríkjum.  Mikið er um blúndur, meira dempaða liti og pastel liti”, segir Lára.
 
IW_1001_CA_018_A5OW
 
 Solder luxer er með mikið af fallegum yfirhöfnum á góðu verði ásamt gallapilsum og léttum, flottum kjólum. Saint Tropers og Soaked In Luxury bjóða upp á vandaðar flíkur á góðu verði. Hjá Inwear og Part Two er hægt að nálgast flestar stærðir. Þessi tvö merki eru þekkt fyrir sérlega vandaðar vörur og sniðin henta íslenskum konum vel. “Viðskiptavinir Companys eru á öllum aldri og stærðum og því leggjum við áherslu á að eiga vörur sem henta flestum konum", segir Lára að lokum.
 
IW_1003_CA_001_A5OW
 
 
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica