Gestuz
Gestuz er flott dönsk hönnun sem fæst í verslunum Galleri 17. Sanne Sehested Nielsen og Lene Boeser eru konurnar á bakvið Gestuz sem var stofnað árið 2007. Fyrirtækið hefur vaxið gríðarlega síðan þá og breitt úr sér yfir á alþjóðlegan markað. Í dag er hönnunin seld í 25 löndum þar á meðal hér á landi í Galleri 17 eins og áður hefur komið fram.
Amanda Nørgaard sem situr fyrir í nýrri auglýsingu frá Gestuz var valin kvenfyrirsæta ársins á dönsku tískuverðlaununum sem fram fór nú nýliðna helgi. Amanda er aðeins 16 ára gömul og hefur náð miklum árangri í fyrirsætuheiminum. Myndir af henni í hönnun Gestuz má sjá hér að neðan.
Einnig er vert að geta þess að útskriftarkjóll og pils frá Gestuz var notað í útskriftarmyndaþættinum okkar sem sjá má hér.

Amanda Nørgaard í nýrri línu Gestuz sem fæst í verslunum Galleri 17














Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid