Moss Vintage ný lína í Galleri 17
Ný lína Moss sem nefnist Moss Vintage er komin í verslanir Galleri 17. Sigrún Hjálmarsdóttir fatahönnuður og verslunarstjóri Galleri 17 hannaði línuna en vörumerkið vann hún í samstarfi við Kristján Þór markaðsstjóra NTC.
Við fengum þennan unga og upprennandi hönnuð til að segja okkur frá Moss og nýju línunni.
Moss línan er fyrir alla aldurshópa að sögn Sigrúnar, "hönnunin er frekar basic en með smá töffaralegum stíl svo að hún hentar breiðum hópi" segir Sigrún.
Moss kom fyrst í verslanir Galleri 17 í lok ársins 2006 en fyrsta línan sem kom á markað fékk góðar viðtökur og seldist gríðarlega vel.
Andrea Magnúsdóttir hönnuður átti upphaflega hugmyndina að framleiðslu Moss að sögn Sigrúnar. „Við unnum svo að hönnuninni í sameiningu ég, Andrea og stelpurnar í Galleri 17“ segir Sigrún.
Í dag er Sigrún aðalhönnuður Moss en hún lærði fatahönnun í Danmörku fyrir nokkrum árum síðan. "Mér finnst rosalega gaman að hanna og hef haft áhuga á hönnun og tísku frá því ég man eftir mér" segir Sigrún sem er ekki að fara að hætta að hanna en hún segir að framundan séu spennandi tímar hjá Moss. Gold línan er væntanleg núna í sumar en hún inniheldur fáar en flottar flíkur. „Næsta haust kemur svo meira af Moss Vintage ásamt úlpum. Það verður army fílingur í þessu“ segir Sigrún. En hún segir að það verði mikið um "army " í sumar og næsta vetur ásamt, grófum skóm, gallabuxum og svo auðvitað fylltum hælum.
Efri mynd: Moss bolur 4.990, Moss buxur 11.990, Mentor skór 39.990
Neðri mynd: Moss kjóll 4.990, Moss peysa 5.990, Moss leggings 4.990, Mentor skór 39.990.
Vert er að minnast þess að nú er 10% afsláttur í verslunum Galleri 17 þar á meðal af nýju Moss línunni.














Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid