Heitt í haust
Við náðum tali af þeim Sólveigu í Galleri Sautján Kringlunni og Bjarka rekstrarstjóra Kultur menn til að forvitnast hvaða straumar og stefnur væru allsráðandi í tískunni í haust fyrir dömur og herra.
Dömurnar fyrst!
„Aðsniðnir blazer-jakkar eru það nýjasta í dömutískunni, en þeir koma ótrúlega flott út við gallabuxur og það sem er nýjast í gallabuxum eru dökkar skinny gallabuxur“ segir Sólveig.
Litir haustsins eru að Sólveigar mati frekar basic en svartur og grár verða allsráðandi í bland við skæra liti. „Leðurlíkisleggings eru ótrúlega vinsælar um þessar mundir enda líka mjög flottar við síða boli og kjóla. Það sem toppar lúkkið eru klárlega háir, fylltir hælar,“ sagði Sólveig að lokum.
En herrarnir?
„Grátt og svart eru aðal haustlitirnir í herratískunni í bland við blátt,“ sagði Bjarki inntur eftir litum. „Peysur er eitthvað sem menn ættu að eiga nóg af og er úrvalið mikið hjá okkur, hnepptar, renndar, þykkar og grófar er alveg málið í vetur,“ sagði hann og bætti við að military frakkar séu að verða mjög áberandi í herratískunni.
„Við erum að sjá meira af technical efnum í yfirhöfnum sem anda og hrinda frá sér vatni. Þetta er alltaf spurning um smáatriðin.“ Svo virðist vera að fólk vilji orðið vandaðri og endingarbetri flíkur sem og góð snið og því tilvalið að leggja leið sína í Kultur Menn og kíkja á úrvalið í yfirhöfnum þar.














Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid