Tískuumfjöllun

NTC Vefstjóri 26.2.2009 Tískuumfjöllun

Vorið frá Part Two - heilluð af Indlandi

Part Two

Indland 68Yfirhönnuður Part Two, Pernille Skrifer, er hugfangin af þeim tíma þegar Bítlarnir ásamt fylgdarliði heimsóttu Rishikesh á Indlandi. Í febrúar 1968 á hátindi frægðar sinnar tóku Bítlarnir sér frí frá frægð og frama og stunduðu íhugun með Maharishi Mahesh Yogi. Þeir sömdu mikið af tónlist á meðan dvölinni stóð og meðal annars er lag Lennon "Dear Prudence" óður til ungrar systur Miu Farrow sem var ásamt systur sinni með Bítlunum í Rishikesh.   Þetta var tími þegar hippar og blómabörn börðust fyrir friði, frelsi og jafnrétti kynjanna.

Vorlínan er undir sterkum áhrifum blómatímans þar sem frjálslegur tíðarandinn blandaðist við falleg mynstur, silkiefni og djarfa liti, bleikt, grænt og lilla í bland við klassískari tóna "beige", hvítt og svart. Í Part Two TRULY linunni er mikið af æðislegu leðri sem er "raw" en jafnframt mjög kvenlegt.

Vorlína Part Two er komin í Companys, Kringlunni.  Láttu skilningarvitin ráða í vor.

Sjáumst í Companys!


Þetta vefsvæði byggir á Eplica