Religion Clothing UK

Vorum að fá sendingu frá einu flottasta merkinu í bransanum, Religion Clothing.
Það sem byrjaði fyrir 20 árum sem underground fatamerki í austur London náði fljótt að marka sér sterk spor hjá tískumeðvituðum Lundúnarbúum en aðal einkenni Religion er einmitt ekta breskt punk – rock n´roll attitjúd.
Í sumar fáum við að sjá hjá þeim flotta hluti eins og rifna boli, sterka grafík og nettar línur, sé ekki minnst á einn heitasta hlutinn fyrir sumarið, síða peysu með kraga og t-shirt með oversized hauskúpu printi, þar sem ef vel er gáð, leynist meira á bak við en virðist í fyrstu sýn.
Religon fæst í Retró Smáralind og Gallerí 17 Kringlunni.














Adidas
Again & Again
Billi bi
Carhartt
Diesel
DKNY
G-Star
InWear
Kawasaki
Marithé et François Girbaud
Matinique
Miss Sixty
Paul Smith
Solid