Tískuumfjöllun

Kristján 15.5.2009 Tískuumfjöllun

DKNY í 20 ár

Á þessu ári eru 20 ár liðin síðan Donna Karan stofnaði vörumerkið DKNY.

Donna_Karan

Donna Karan stofnandi DKNY fæddist inn í tískuheiminn á Long Island. Faðir hennar, Gabby Faske (sem lést þegar Karan var aðeins 3 ára) var klæðskeri, móðir hennar, Helena var tískumódel og seldi tískuföt og jafnvel stjúpfaðir hennar Harold Flaxman var viðriðinn tískubransann. Það var því fátt eðlilegra en að Donna Karan hannaði sína fyrstu fatalínu og setti upp sína fyrstu tískusýningu strax á framhaldskólaárum sínum.

Árið 1989 stofnaði Donna Karan vörumerkið DKNY. Innblástur hönnunar DKNY var og er stórborgarlíf í New York, þar sem öllum straumum ægir saman, allt frá götulistamönnum til Wall street viðskiptamógúla. Efnaval, litaval og snið endurspegla hina margbrotnu borg og fólkið sem í henni er.

DKNY varð á örfáum árum gríðarlega vinsælt. Út frá DKNY voru stofnuð DKNY Jeans, DKNY Active, DKNY underwear, DKNY Junior og DKNY Kids, öll byggð á sömu hugsjón og innblásin af borginni sem þau eru kennd við.

Fáum árum eftir stofnun DKNY hóf verslunin EVA að flytja inn og selja merkið og hefur gert það allar götur síðan.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica