NTC+ kortið – skilmálar

Innganga í NTC+

  1. 1. Allir einstaklingar 16 ára og eldri geta sótt um NTC+ kortið. NTC+ er ekki í boði fyrir fyrirtæki og félagasamtök.
  2. Hægt er að sækja um inngöngu í NTC+ á heimasíðu NTC hf. www.ntc.is.
  3. NTC+ meðlimir fá sent NTC+ kort innan 14 daga frá umsókn. Kortið gildir í 3 ár frá útgáfudegi.
  4. NTC+ meðlimir fá aðgang að notendasvæði á www.ntc.is þar sem hægt er að fylgjast með punktastöðu, uppfæra notendaupplýsingar og skrá óskir um þjónustu.
  5. Hægt er að segja sig úr NTC+ með skriflegri uppsögn sem senda skal á skrifstofu NTC hf. Við uppsögn fyrnist punktastaða.
NTC+ punktar
  1. NTC+ punktar ávinnast þegar greitt er fyrir vörur í öllum verslunum NTC hf. með peningum eða greiðslukortum. Punktar reiknast sem prósentuhlutfall af greiddri upphæð. Prósentuhlutfall ákvarðast af tegund NTC+ korts.
  2. Endurgjöf í punktum nemur 5% á almennu korti og 10% á gullkorti.
  3. NTC+ korthafi uppfærist úr almennu korti í gullkort þegar samanlögð velta korts fer yfir 250 þúsund krónur.
  4. Framvísa verður NTC+ kortinu við greiðslu til að punktasöfun eigi sér stað. Punktasöfnun er ekki afturvirk.
  5. Hægt er að nota NTC+ punkta sem greiðslumáta við kaup á öllum vörum sem seldar eru í verslunum NTC hf með því að framvísa NTC+ kortinu. Verðmæti hvers NTC+ punkts er 1 króna. NTC+ punktar gilda sem greiðsla á tilboðum og á útsölum.
  6. NTC+ punktar eru eign handhafa NTC+ kortsins og eru ekki framseljanlegir.
  7. Hægt er að sjá punktastöðu NTC+ kortsins á www.ntc.is.
  8. Ef vöru er skilað gegn endurgreiðslu þá leiðréttast punktastaða til samræmis við upphæð.
  9. Punktastaða fyrnist á 4 árum.
  10. Handhafi NTC+ kortsins er ábyrgur fyrir því. Týnist kortið ber að tilkynna það á skrifstofu NTC hf.
  11. Tilraun til misnotkunar á NTC+ korti ógildir kortið. Við ógildingu fyrnist punktastaða.
  12. Skilmálar NTC+ kortsins geta breyst án fyrirvara. Skilmálar eru birtir á www.ntc.is.