NTC skilareglur
Eftirfarandi skilareglur gilda í öllum verslunum NTC. Reglurnar eru byggðar á verklagsreglum sem viðskiptaráðuneytið útbjó með Neytendasamtökunum í janúarmánuði 2001.
1. Skilafrestur vöru er 14 dagar.
Ógallaðri vöru er hægt að skila innan 14 daga gegn kassakvittun eða sambærilegri staðfestingu viðskipta s.s. greiðslukortayfirliti.
Vara sem sannarlega telst gölluð er ávallt hægt að skila í verslunum gegn kassakvittun eða sambærilegri staðfestingu viðskipta s.s. greiðslukortayfirliti.
2. Gjafamerki
Viðskiptavinir NTC geta fengið vörur merktar með gjafamiða óski þeir þess. Vöru sem merkt er gjafamiða fæst skilað án framvísun kassakvittunnar innan 14 daga frá dagsetningu miðans.
Á aðventunni, í aðdraganda jólahátíðar er hægt að fá vörur merktar með „jólagjafamiðum“. Með jólagjafamiða er gert ráð fyrir að gjöfin sé gefin 24. desember og því hægt að skila vörunni til 6. janúar (innan 14 daga).
3. Verð vöru við skil
Verð vöru við skil skal miðast við upprunalegt verð vörunnar sem sýnt er á kassakvittun við skil. Sé vara merkt með gjafamiða þá skal miðast við gildandi verð vörunnar.
4. Inneignarnótur
Við vöruskil á viðskiptavinur rétt á að fá afhenta inneignarnótu ef ný vara er ekki tekin upp í þá vöru sem skilað er. Inneignarnótan gildir í eitt ár frá útgáfudegi og gildir til úttektar á ótilgreindri vöru að andvirði inneignarnótunnar.
Inneignarnóta sem gefin er út innan 14 daga frá útsölubyrjun gildir ekki sem greiðsla á útsöluvöru og er merkt sem slík.
5. Gjafabréf
Gjafabréf gefin út af NTC gilda sem fullgild greiðsla á vörukaupum í 4 ár frá útgáfudegi.
6. Útsölur og vöruskil
Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.
Sé vara keypt innan 14 daga fyrir útsölubyrjun skulu vöruskil miðast við verð vörunnar á útsölunni. Viðskiptavinur getur fengið inneignarnótu að andvirði upprunalegs verðs vörunnar sem gildir ekki sem greiðsla á útsöluvöru og er merkt sem slík.
