Tax Free

NTC býður, í samstarfi við Iceland Refund, upp á Tax Free endurgreiðslu til aðila sem skráðir eru með lögheimili erlendis.

Viðkomandi aðilar eiga rétt á að fá allt að 15% endurgreiðslu af vörum sem þeir flytja með sér úr landi í gegnum Tax Free kerfið.  Tax Free ávísanir eru prentaðar út við greiðslu í verslunum okkar.

Það eru þrjár gullnar reglur sem gilda þegar verslað er Tax Free á Íslandi:

  • Lágmarks söluupphæð er kr. 4.000,- í hverri verslun fyrir sig.
  • Ef söluupphæðin er hærri en kr. 34.501,- á einstakri Tax Free ávísun, þá þarf áður en haldið er af landi brott, að sýna vörurnar í tollinum og fá tollstimpil á þá tilteknu ávísun ( á ekki við um ullarvörur).
  • Tax Free ávísunin gildir í þrjá mánuði frá þeim degi sem kaup voru gerð.

Allar frekar upplýsingar eru að finna á heimasíðu Iceland Refund á www.icelandrefund.com.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica